Nokkur umræða hefur verið um PMT kerfið á Barnalandi (
http://er.is/messageboard/messageboa...type=52&page=1) og ekki allt jákvætt sem sagt er um kerfið þar. Það væri áhugavert að heyra vinkla frá kennurum sem unnið hafa með þetta kerfi, hvernig þeim hefur gengið að nota það.
Meðal þess sem sagt hefur verið er:
Ég hef líka heyrt um dæmi eftir heilan vetur þá hafði fyrirmyndar stúlka sem alltaf gerði rétt fengið 4 umbunarspjöld en bróðir hennar sem á erfitt með hegðun fékk 40 spjöld.
Hvaða skilaboð er þessi stúlka að fá? Ef ég haga mér illa þá fæ ég mun fleiri umbunarspjöld og mun meiri athygli.
Einnig veit ég dæmi þess að mjög erfiðir einstaklingar fengu stöðugt "stopp" miða fyrir slæma hegðun þar til þeir voru farnir að missa marks, því þeir héldu áfram uppteknum hætti og sumum starfsmönnum fannst ekki lengur skipta nokkru máli að gefa þeim stoppmiða.
Þannig horfðu aðrir nemendur upp á þessa einstaklinga brjóta reglur trekk í trekk án þess að nokkuð væri gert í því.
Eitt sinn kom dóttir mín heim voðalega sorgmædd (hún er alltaf stillt og prúð) sagði að kennarinn hefði "hótað" því að þau fengju ekki að taka út umbunaferð sem bekkurinn hefði unnið sér inn af því að ákveðnir nemendur hefðu hagað sér illa þann daginn.
Skilaboðin voru: allt sem þið eruð búin að vinna ykkur inn skiptir bara engu máli, ég get tekið það af ykkur þegar mér hentar.
Þess vegna er ég ekki hrifin af þessu kerfi af því það er svo vandmeðfarið og ekki möguleiki að ALLIR starfsmenn skólans séu að nota það rétt. Þess vegna getur það virkað mjög öfugt ef illa er farið með það.
Einhver talar um kerfið í Álftanesskóla sem hentugra.
Ég get bara sagt þér að ég er með börn í skóla í Hafnarfirði sem vinnur eftir þessu og ég er ekki hrifin.
Ég vil miklu frekar að börnunum mínum sé kennt að vilja haga sér vel af innri hvöt heldur en að haga sér vel til að fá eitthvað í staðin (Uppbyggingarstefnan t.d. í Álftanesskóla notar þá aðferð sem hefur reynst mjög vel)
Stilltu og rólegu börnin gleymast alveg í þessu kerfi og fá miklu miklu minni umbun en þau sem eru erfið og haga sér illa.
Refsingarnar eru vandmeðfarnar og ekki á allra færi að nota þær rétt
Er einhver sem hefur reynslu af því og getur lýst því fyrir okkur?