Kennarinn.is

Bakka   Kennarinn.is > Námsgreinar > Íþróttir
Nýskráning SOS Félagaskrá Dagatal Leita Innlegg dagsins Merkja borð sem lesin

» Login

Gleymdirðu lykilorðinu þínu?
» September 2010
S M Þ M F F L
293031 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 12
» Þín skoðun
Á að leyfa fyrirtækjum að reka leikskóla?
Já, ekki spurning - 40.74%
11 Atkvæði
Hef ekki myndað mér skoðun - 14.81%
4 Atkvæði
Nei, alls ekki - 44.44%
12 Atkvæði
Total Votes: 27
Þú getur ekki kosið í þessari könnun.
» Leita í umræðum
» Auglýsing
Svar
 
Þráðatæki Sýna viðmót
  #1  
Gamalt 06-01-2008, 11:35
Passamynd hjortur
hjortur hjortur er ekki tengd(ur)
Administrator
 
Dagsetning skráningar: Sep 2006
Innlegg: 175
Arrow Tilraunaverkefni: Klukkutími í leikfimi á dag!

Ný dönsk-norsk rannsókn sem unnin var undir stjórn Lars Bo Andersen prófessors við Syddansk Universitet sýnir fram á mikinn mun á heilbrigði og námsárangri nemenda sem fá klukkutíma í leikfimi á dag. Í dag hafa nemendur tvo tíma á viku í leikfimi, líkt og hér á landi og varar prófessorinn við alvarlegu heilbrigðisvandamáli ef ekki er markvisst bætt úr hreyfingaleysi barna í dag.

Regluleg hreyfing barna minnkar verulega líkur á ýmsum lífsstílssjúkdómum eins og hækkuðum blóðþrýstingi, sykursýki 2 og hjarta- kransæðasjúkdómum. En regluleg hreyfing bætir líka námsárangur barnanna. Nemendur í 7. bekk í Skovlunde í Kaupmannahöfn eru orðin betri í lestri og skrift eftir að leikfimitímum var fjölgað og þau eru vel yfir landsmeðaltali. Þau hafa náð betri árangri í stærðfræði, dönsku og eðlisfræði enda hafa kannanir sýnt fram á að beint samhengi er á milli heilbrigðs líkama og námsárangurs. "Hraust sál í heilbrigðum líkama".

Danski menntamálaráðherrann er ekki viss um að lausnin felist í fjölgun leikfimitíma enda útheimti slíkt aukið fé og fleiri kennara. Ábyrgðin sé ekki síst foreldranna að tryggja hreyfingu barnanna.

Það væri áhugavert að heyra ykkar skoðun á þessu málefni og hvort einhverjir hafi verið að íhuga tilraunir með að fjölga leikfimitímum.
__________________
--
Bjóddu samstarfsfélögum, gömlum samnemendum og öðru kennaraliði að skrá sig á kennarinn.is.

Þeim mun fleiri sem skrá sig, þeim mun virkari og skemmtilegri verður vefurinn!
Svara með tilvitnun
  #2  
Gamalt 07-01-2008, 13:49
Helga Gísla Helga Gísla er ekki tengd(ur)
Busi
 
Dagsetning skráningar: Dec 2006
Innlegg: 20
Thumbs up Íþróttir

Gaman að heyra þetta og mjög trúlegt. Vert að athuga og fróðlegt að fylgjast með hvort einhverjir taki við sér.
Svara með tilvitnun
  #3  
Gamalt 30-01-2008, 15:57
Passamynd Gvendur göslari
Gvendur göslari Gvendur göslari er ekki tengd(ur)
Tutor
 
Dagsetning skráningar: Jan 2007
Innlegg: 49
Það væri náttúrulega ágætis byrjun að fá foreldra til þess að senda börnin sín bara labbandi í skólann, en veri ekki alltaf að keyra þau út um allt. Börn eru óþreytandi ef að þau fá að hreyfa sig.
__________________
He who laughs last......didn't understand the joke
Svara með tilvitnun
  #4  
Gamalt 31-01-2008, 10:18
Ragnheiður Ragnheiður er ekki tengd(ur)
Busi
 
Dagsetning skráningar: May 2007
Innlegg: 3
Hvar get ég séð þessa rannsókn?
Svara með tilvitnun
  #5  
Gamalt 31-01-2008, 10:42
Passamynd hjortur
hjortur hjortur er ekki tengd(ur)
Administrator
 
Dagsetning skráningar: Sep 2006
Innlegg: 175
Sæl Ragnheiður

Ég las þetta í dönsku dagblaði. Ég skal athuga hvort ég finni ekki eitthvað um þetta á netinu.
__________________
--
Bjóddu samstarfsfélögum, gömlum samnemendum og öðru kennaraliði að skrá sig á kennarinn.is.

Þeim mun fleiri sem skrá sig, þeim mun virkari og skemmtilegri verður vefurinn!
Svara með tilvitnun
  #6  
Gamalt 31-01-2008, 10:56
Passamynd hjortur
hjortur hjortur er ekki tengd(ur)
Administrator
 
Dagsetning skráningar: Sep 2006
Innlegg: 175
Hér er umræðan um þetta á danska dagblaðinu 24 timer:
http://www.24timer.dk/24t/forums/show/245/825.page

Annars geturðu líka bara prófað að senda Lars Bo Andersen tölvupóst en hann stóð fyrir rannsókninni. Netfangið er lars.bo.andersen (hjá) nih.no.
__________________
--
Bjóddu samstarfsfélögum, gömlum samnemendum og öðru kennaraliði að skrá sig á kennarinn.is.

Þeim mun fleiri sem skrá sig, þeim mun virkari og skemmtilegri verður vefurinn!
Svara með tilvitnun
  #7  
Gamalt 05-02-2008, 13:53
Ragnheiður Ragnheiður er ekki tengd(ur)
Busi
 
Dagsetning skráningar: May 2007
Innlegg: 3
Sá sambærilega rannskókn í Danska sjónvarpinu.
Þeir sem hafa áhuga geta skoðað hér.
http://www.dr.dk/DR1/Aftenshowet/Pro...1026145940.htm
Svara með tilvitnun
  #8  
Gamalt 06-02-2008, 09:08
Sesselja Guðmunds Sesselja Guðmunds er ekki tengd(ur)
Busi
 
Dagsetning skráningar: Mar 2007
Innlegg: 3
sammmála : að keyra börnin í skólann er óskaplega auðvelt og "öruggt" en þau börn eru ekki jafn vel vöknuð þegar þau koma í skólann. Líkamleg virkni hefur áhrif á einbeitingu og afköst á bóklega sviðinu.
Ég velti líka stundum fyrir mér hvort sérkennsla gæti oftar verið í gegnum hreyfingu eða tónlist, svo ég taki nú dæmi um það sem ég þekki best. Ég hef séð mun á illa stöddum börnum þegar þau fá að vinna með tónlist, en hef ekki kafað djúpt í rannsóknir um það efni.
Hafið þið prófað eitthvað svona "óhefðbundið"?
Kveðja
Sesselja
Svara með tilvitnun
  #9  
Gamalt 06-02-2008, 21:39
Passamynd hallajons
hallajons hallajons er ekki tengd(ur)
Busi
 
Dagsetning skráningar: Feb 2007
Staðsetning: Akureyri
Innlegg: 4
Já, enn og aftur er bent á mikilvægi hreyfingar og tengingu þess við námsgetu. Heyr, heyr!

Ég hef fulla trú að óhefðbundnar aðferðir komi fleirum að gagni en þær hefðbundnu. Eftir því sem fjölbreytileikinn er meiri, hljóta líkurnar að aukast á að þú náir til sem flestra. Það hlýtur að vera hægt að gefa nemendum kost á að nema námsefnið á þann hátt sem þeim er eðlislægast. Fjölgreindirnar koma sterkt inn í þá umræðu. Eigum við ekki einmitt að stuðla að ræktun allra fjölgreindanna? Það er þó afar umdeilt og ég tala ekki af reynslu sem grunnskólakennari, því miður en hef alltaf heillast af fjölgreindunum og þeim möguleikum sem kennsluaðferðir tengdar því efni bjóða upp á. Sjálf vinn ég á leikskóla en er menntuð sem grunnskólakennari.
Svara með tilvitnun
Svar


Virkir notendur á þessum þræði: 1 (0 meðlimir og 1 gestir)
 
Þráðatæki
Sýna viðmót

Reglur um innlegg
Þú getur ekki stofnað nýja þræði
Þú getur ekki sent inn svör
Þú getur ekki sent viðhengi
Þú getur ekki breytt innleggjunum þínum

vB kóði er Á
Broskallar eru Á
[IMG] kóði er Á
HTML kóðinn er Af
Hoppaðu á borðum

Powered by vBadvanced CMPS v2.2.0

Allir tímar eru GMT. Klukkan er nú 05:04.


Kennarinn.is er umræðuvefur fyrir kennara.
Allur réttur áskilinn ©2006 - 2010, Scope Communications ehf.
Powered by vBulletin Version 3.6.1 by Jelsoft Enterprises