Það er mjög gott að kíkja inn á
http://www.lesblind.is því þar eru þræðir á m.a. Davis-leiðrétting og Davis-námstækni sem er sitt hvor hluturinn. Davis-leiðréttingin er fyrir fólk með lesblindu, er einstaklingskennla og kostar fé. Davis-námstæknin er fyrir kennara til að nota inn í almennum bekk og nýtist öllum nemendum. Þá er notaður leir til að meistra stafina (læra til hlítar), orkuskífa sem stillir orku bekkjarins, stilling (n.k. hugleiðsla?)athyglisstilling og dúskboltar með jafnvægisæfingum. Þetta er heilmikið ferli og margt í hverju atriði. Ótrúlega skemmtileg námstækni sem er bara viðbót við hitt sem fyrir er en kemur ekki í staðinn fyrir neitt. Það er það góða við þessa aðferð að við erum ekki að henda neinu út bara græðum þá þessu!!